Ofurrollur

Tadaaaa!
Ég fór semsagt til London fyrir 2 og hálfum mánuði. Ég er komin aftur, ef einhver var að velta því fyrir sér.

Hafði það prýðilegt í London, við Nonni örkuðum vongóð af stað í átt að Buckinghamhöll með tebolla og hágæða Frón kex, ætluðum að kynna Betu vinkonu fyrir alvöru kexi. En neinei, okkur var ekkert hleypt inn og Beta vildi bara ekkert við okkur tala, veifaði okkur ekki einu sinni. Skítapakk.

Hótelið okkar var til fyrirmyndar, menn með kúluhatta sem opnuðu fyrir manni dyrnar og svona. Ég skoðaði nú samt aðallega hótelbarinn á hótelinu, Nonni var orðinn þekktur þar sem Mr. Stella og hjón sem voru með okkur voru þekkt sem vodka & kók.

Árshátíðin var bara brill, Reykjavíkurdeildin sýndi stórglæsilegt Sound of Music dans og söngvavídjó sem hafði verið unnið að sleitulaust í nokkra mánuði. Mjög fallegt, enginn í takt og tónlistin passaði ekki við myndina, en sem betur fer var okkar atriði sýnt síðast og ég þykist vita að það muni afskaplega fáir eftir því. Og nei, ég ætla ekki að setja link inn á það hér.

Akureyri var með keppni á milli þjónustuvera í kunnáttu á símaskránni og voru svo elskulegar að draga mig upp á svið til að keppa fyrir hönd Reykjavíkur. Ég og konan sem var með mér í liði unnum glæstan sigur. Hún reyndar vissi svarið við öllu, eina sem ég gat svarað var hvernig Goldfinger væri skráð í símaskránna (sem sýnir kannski menningarlegt innræti mitt).

Okkur til mikillar gleði og kátínu þurftum við svo að vera búin að tékka okkur út klukkan 9 morguninn eftir árshátíðina. Þótt ótrúlegt megi virðast missti enginn af rútunni frá hótelinu, þótt liðið hafi verið frekar mishresst.

Við komumst heim og síðan þá hefur allt verið í rólegheitum, Nonni hefur haldið sig úti á sjó og ég hef haldið mig heima við og í vinnunni.

Við Selma höfum samt stundað sunnudagsfjölskyldubíltúra af kappi síðustu vikur. Byrjuðum á því að taka Reykjanesrúnt, fengum okkur pulsu í Grindavík og kíktum og sigdalinn í Þorbirni. Skrunuðum svo út í Garð, þangað sem hvorug okkar hafði komið áður. Þorðum ekki í Sandgerði þar sem það var skollið á myrkur og við vorum vissar um að það myndu ráðast á okkur skrilljón Leoncieeftirhermur syngjandi Ást á pöbbnum.

Tveimur vikum seinna tókum við daginn snemma og fórum í Húsdýragarðinn. Vorum að virða fyrir okkur svínin þegar við rákumst á ótrúlega gáfulega foreldra sem voru að benda börnunum sínum á "svínapabba". Þessi ágæti "svínapabbi" var með risastórt skilti yfir stíunni sinni sem á stóð Freyja, og var að auki með spena fyrir allan peninginn.

Eftir gleðilega Húsdýragarðsferð fórum við á Þingvelli og í Skálholt og vorum held ég einu Íslendingarnir á svæðinu hvar sem við komum.

Annars hefur nú frekar lítið gerst. Fyrir utan auðvitað að það greip mig smá stundarbrjálæði um daginn, ég verð bara í 50% vinnu í haust og vúps, 100% háskólanámi. Hvaðan kom þetta nú?

geómetríz
-kreisí-

- að skoða rolluna

Nýlegt Jarm

- RAD
- Krónan
- Systkinadýrðin
- Svala, Svava og karna.is
- Hvað á ég að gera?
- Ég fékk email...
- Vó...
- mér þykir
- Úr handraðanum
- Naunau! 2 blogg á einum degi!

Kempurnar

- ari
- arna
- auður
- danadrottningin
- davíð þór
- dr siggi
- eddi kyntröll
- esther
- finnurtégé
- friðriksson
- gréta bezt
- heba
- heiða
- ingibjargirnar
- linda
- lísa
- myrkur
- rannveig
- sindri
- sirrý
- tóta
- urður
- vaðbrekkuætt
- vitleysingarnir
- þorbjörn
- þórunn gréta

Aktu taktu

- b2
- mythos
- pandora
- krogerup
- blogskins
- sheepcafé
- ice-sar.org
- dp challenge
- ullarsokkurinn

Fallið ryks

- janúar 2003
- febrúar 2003
- mars 2003
- apríl 2003
- maí 2003
- júní 2003
- júlí 2003
- ágúst 2003
- september 2003
- október 2003
- nóvember 2003
- desember 2003
- janúar 2004
- febrúar 2004
- mars 2004
- apríl 2004
- maí 2004
- júní 2004
- júlí 2004
- ágúst 2004
- september 2004
- október 2004
- nóvember 2004
- desember 2004
- janúar 2005
- febrúar 2005
- mars 2005
- apríl 2005
- maí 2005
- júní 2005
- júlí 2005
- ágúst 2005
- september 2005
- október 2005
- nóvember 2005
- desember 2005
- janúar 2006
- febrúar 2006
- mars 2006
- apríl 2006
- maí 2006
- júní 2006
- júlí 2006
- ágúst 2006
- september 2006
- október 2006
- nóvember 2006
- desember 2006
- janúar 2007
- febrúar 2007
- mars 2007
- apríl 2007
- maí 2007
- júní 2007
- júlí 2007
- ágúst 2007
- september 2007
- október 2007
- nóvember 2007
- desember 2007
- janúar 2008
- febrúar 2008
- mars 2008
- apríl 2008
- maí 2008
- júní 2008
- júlí 2008
- ágúst 2008
- september 2008
- október 2008
- nóvember 2008
- desember 2008
- janúar 2009
- júní 2009

Site 
Meter
heimsóknir síðan 22. janúar 2003