Ofurrollur

Afmæli
Litli lukkusnúðurinn Sigurður Óttar varð eins árs í gær.

Afmælisteitið var haldið á sunnudaginn þar sem einkunarorðin "It's my party and I cry if I want to" voru í hávegum höfð. Vaknaði gólandi og sofnaði gólandi. Tomma Togvagns plötuspilarasettið sem foreldrarnir gáfu honum fékk það óþvegið í geðprýðisköstunum og snarlega var hætt við plön um að veita honum systkyni í náinni framtíð.

Hér má sjá gaurinn raða í sig saltstöngum.

Annars er allt gott að frétta. Síðasta próf hjá mér á fimmtudaginn. Tók eitt í gær í sögu, en var búin að vera í panikkasti yfir vanþekkingu minni á húmanisma, kalvínisma og einokun. Tók nett Grey's Anatomy á þetta og lagðist á baðherbergisgólfið og reyndi að sansa sjálfa mig. Pé hirti mig upp og sendi mig af stað. Þegar ég opnaði prófið sá ég að ég gat leyst allt án þess að grenja eða hafa áhyggjur af falli......bjútífúll. Líffræðinni var skilað í síðustu viku með nettu lokaverkefni um hvernig má vistvæða heimili, endurvinslu og skiptingu yfir í lífræn og vistvæn efni til heimilishalds. Fær Auður bestu þekkir fyrir yfirlesturinn og pepp....þú ert best.

Um og eða eftir helgi ætlum við Ess Óttar að skreppa í sveitina til Gé Pé afabró og vasast í lömbum og eldhússtörfum. Verður ábyggilega pínu skrýtið að hafa ekki ömmu heima en klárlega bæta þeir það upp föðurbræður mínir Gé, Ess og Pé. Kannski verður við í viku eða lengur. Fer allt eftir hvað pabbinn á heimilinu á eftir að sakna okkar mikið.

Leikfélagið frú Norma er að byrja aftur í sumar og mætti Halldóra Malin hérna í gær og innti eftir loforði mínu um að vera auglýsingastjórinn þeirra. Ég svitnaði. Sveitin, vinna í júní og ferðalag á Vestfirði að auki.......jú, ætli maður skelli sér ekki bara í þetta og taki smá Síkrett á þetta, þetta hlýtur alltsaman að ganga upp.
Við Halldóra tókum svo eitt rauðvínsglas á þetta í tilefni dagsins, en hún átti líka afmæli í gær eins og Sigurður, trúlofaði sig að auki og alles. Maður verður ekki í vandræðum með að muna þetta í framtíðinni.

Nú tekur lærdómur við, ætli maður verði ekki að leggja á minnið sneggvast cos, sin og tan fyrir próf. Mikið er annars gaman að læra stærðfræði sem er ekksjúllí nothæf, skemmtileg og með kennara sem gerir efnið ekki bara iddíjótprúf, heldur líka áhugavert.

Góðar Stundir
Ingunn BBQ
-Áhugamanneskja um stærðfræði-

- að skoða rolluna

Nýlegt Jarm

- Tadaaaa!
- RAD
- Krónan
- Systkinadýrðin
- Svala, Svava og karna.is
- Hvað á ég að gera?
- Ég fékk email...
- Vó...
- mér þykir
- Úr handraðanum

Kempurnar

- ari
- arna
- auður
- danadrottningin
- davíð þór
- dr siggi
- eddi kyntröll
- esther
- finnurtégé
- friðriksson
- gréta bezt
- heba
- heiða
- ingibjargirnar
- linda
- lísa
- myrkur
- rannveig
- sindri
- sirrý
- tóta
- urður
- vaðbrekkuætt
- vitleysingarnir
- þorbjörn
- þórunn gréta

Aktu taktu

- b2
- mythos
- pandora
- krogerup
- blogskins
- sheepcafé
- ice-sar.org
- dp challenge
- ullarsokkurinn

Fallið ryks

- janúar 2003
- febrúar 2003
- mars 2003
- apríl 2003
- maí 2003
- júní 2003
- júlí 2003
- ágúst 2003
- september 2003
- október 2003
- nóvember 2003
- desember 2003
- janúar 2004
- febrúar 2004
- mars 2004
- apríl 2004
- maí 2004
- júní 2004
- júlí 2004
- ágúst 2004
- september 2004
- október 2004
- nóvember 2004
- desember 2004
- janúar 2005
- febrúar 2005
- mars 2005
- apríl 2005
- maí 2005
- júní 2005
- júlí 2005
- ágúst 2005
- september 2005
- október 2005
- nóvember 2005
- desember 2005
- janúar 2006
- febrúar 2006
- mars 2006
- apríl 2006
- maí 2006
- júní 2006
- júlí 2006
- ágúst 2006
- september 2006
- október 2006
- nóvember 2006
- desember 2006
- janúar 2007
- febrúar 2007
- mars 2007
- apríl 2007
- maí 2007
- júní 2007
- júlí 2007
- ágúst 2007
- september 2007
- október 2007
- nóvember 2007
- desember 2007
- janúar 2008
- febrúar 2008
- mars 2008
- apríl 2008
- maí 2008
- júní 2008
- júlí 2008
- ágúst 2008
- september 2008
- október 2008
- nóvember 2008
- desember 2008
- janúar 2009
- júní 2009

Site 
Meter
heimsóknir síðan 22. janúar 2003