Jæja, ætli það sé ekki best að ég eigi mánaðarlegt blogg Ofurrollunnar að þessu sinni.
Búin að hanga í sumarfríi síðan í lok júlí og hef þar af eytt um 19 klukkutímum í Reykjavík og er núna stödd á Egilsstöðum í hringferð númer 2 um landið.
Þetta hófst allt með því að Nonni las um efnahagsástandið í Mogganum og trylltist, svo við neyddumst til að flýja út á land.
Nonni hress við húsbílinn sinn á Mývatni
Adam var skelfingu lostinn í Runu um verslunarmannahelgina
Lísa sýndi listir sínar
Fórum í bústað í Biskupstungurnar og Strokkur var hress...
...og hrossaflugurnar líka...
...og grasmaðkarnir...
...og köngulærnar...
...og ógeðspaddan
Legið í leti í sofétferð í Biskupstungum
Svo fórum við á Melrakkasléttuna að hitta Varamanninn
Við fórum með honum í Núpskötluvatn
Gunni varð skyndilega andsetinn úti á miðju vatni
Við fundum fisk, þótt ég hafi verið útnefnd fiskifæla
Nonni var sáttur við siglinguna
Við fórum á sjóinn, ég hélt ég væri að fara í afslöppunarferð og myndi flatmaga á sólstól með kokteil við höndina, en það var klárlega rangur misskilningur
Ég sleit þorska upp úr hafinu með berum höndum
Svo drap ég þá án þess að hugsa mig tvisvar um :) Varð ekkert sjóveik en fékk þessa fínu sjóriðu þegar ég kom í land.
Nonni veiddi stærsta fiskinn
Hann var ekkert ósáttur við þaðNú, á meðal gleðilegra atburða sem því miður voru ekki festir á filmu má nefna heimsókn í Lundarbrekku, gríðarlegt djamm á Raufarhöfn, hækjubjörgun á Kaupfélagsplaninu og gleðilega handboltastund hjá BBQ sem endaði með því að húsfreyjan sá sig knúna til að flýja út í skóg þegar lætin voru sem mest.
Highlight síðustu daga er samt klárlega Diskó Friskó með DJ Kidda Vídjóflugu í gærkvöldi, maðurinn er náttúrulega bara snillingur!
Erum svona að íhuga ballferð í kveld, en það kemur í ljós er líða tekur á kvöldið. Maður verður náttúrulega að vakna snemma í fyrramálið og horfa á leikinn, mitt hlutverk verður aðallega að sitja við hliðina á Nonna tilbúin með hjartastuðtækið ef pumpan í honum skyldi gefa sig í látunum.
Annars byrja ég í skólanum 1. september, ekki útilokað að bloggum fari fjölgandi þar sem ég er sérlega góð í að gera allt annað en að læra þegar ég á að vera að gera það og hefur rollan fagra oft notið góðs af því :)
geómetríz
-alveg að fara að setjast á skólabekk-