.....Skotlandsferð minni ásamt ömmu og systrum er lokið.
Ég gerði ýmislegt, keyrði á vitlausum vegahelmingi með tilheyrandi skrækjum og góli "DRULLAÐU ÞÉR Á RÉTTAN VEGAHELMING ANDSKOTANS TJALLINN ÞINN"
Pörkeisaði fatnað á spottprís. Drakk 0% bjór að nafni Kaliber og kastaði næstum upp. Fór í Edinborgarkastalan og myndaði það sem mér þótti markverðast.......rassaskoruna á ammrískri dónöttkjellingu. Smakkaði Haggis.....líkaði ekki, át úti, fór í eftirminnilega draugaferð um gamla hluta borgarinnar, svaf mikið og át allt allt allt of mikið súkkó og skolaði því niður með kókakóla. Kommon.....stórt Snikkers kostar 50 pens......sem er 70 kall......70 KALL gott fólk.....
Kaliber er EKKI málið....

Ekki heldur Haggis.........

ÞETTA er hinsvegar málið....til hamingju með að
vera í alltof litlum buxum með alltof hert belti.
Gerði mig svo að sjúklegu fífli í Disney-sjoppu á Princestreet.
Ég: This is probably not the right place to ask, but do you know where I can buy Noddy stuff?(Noddy=Doddi....ekki Disney sko, þessvegna ekki réttur staður sko)
Afgr.dama: Uhhhhhhh..........weeeell.........
Ég: You know......Noddy, like the carakter.....and BigEars....
Afgr.dama, ásamt hálfri búðinni: BWAHAHAHAHAHAHAHA....I thought you said NAUGHTY-stuff.....
Jámm, það er stutt á milli Dodda-dóts og Dóna-dóts uppá enskuna.....
Þakka ömmu og systrum fyrir feikigóða ferð, drottinga og aksturssvipi, allar leigubílaferðirnar og þá sérstaklega Hrafndísi fyrir að vera svona mikill hálfviti við fólk....allstaðar, ég er ennþá að jafna mig á hlátursköstunum.
Góðar StundirIngunn BBQ-Turn off The Bay City Rollers-