Allar myndir dottnar út, en myndtæknideild rollunnar í Andfætlingalandi hefur verið gert viðvart og vonandi verður þetta komið í lag bráðlega :)
Af mér er allt prýðilegt að frétta, gengur bara vel í skólanum og enn hefur heilinn á mér ekki skorpnað upp og dottið út um nefið á mér. Líkar bara ljómandi vel við þetta allt saman, sem er magnað miðað við hvað ég hef fengið að heyra það oft síðustu mánuði frá ólíklegasta fólki hvað ég hafi valið mér ógeðslega leiðinlegt og glatað nám.
Eníveis, ætla að fara að stafrófsraða mér til skemmtunar og yndisauka!
geómetríz-kann nú stafrófið afturábak og áfram-